Jú rétt, mínir víðförlu vagnverjar. Það var vel liðið á kvöldið er þessi hörmungarsjón blasti við doksa á Holland Park Avenue. Stuttu síðar bar dráttarbíl að hvar hann fór með þann sænska í eftirdragi til viðgerðar.
Samgöngur | 20.4.2009 | 10:39 (breytt kl. 10:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn fylldi & fjallfelldi dr. fór mikið á fjörurnar við leið 94 ytra. Leið doksa með þessari sólarhringsleið var opt & einatt frá Sheperd´s bush station & að Marble Arch við Oxfordstræti Lundúnarborgar.
Dr.-inn hapði & gaman að hversu vel nýtt leiðin var. Doksi kallinn sveimaði með leið 94 seint á föstudags- & laugardagskvöld & skipti það litlu máli; dobbeldekkerinn drekkhlaðinn æ ofan í æ.
Vagnakostur leiðarinnar var með ágætum; Dennis Trident/Alexander ALX400. Hvorki Citaro liðvagnar né Scania Omnidekk sáust á leið þessari en tíðini var ágætt, yfirleitt á 4-12 míntúna fresti.
Samgöngur | 17.4.2009 | 16:02 (breytt kl. 16:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn blásvarti & -saklausi dr. sá það svart í höfuðborg Bretaveldis hvar maður skyldi ætla að svartnætti grúfði eigi yfir almenningssamgöngum. Öðru nær.
En hjúkkett!!! Dr.-inn leit á svarta gamla dobbel dekkerinn & tók eptir því að hann var ætlaður fyrir drauga- & drýsildjöflaferðir en eigi til almenningsssamgangna.
Samgöngur | 16.4.2009 | 10:10 (breytt kl. 10:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
En svo wúppps, liðvagninn var allt í einu kominn að Kínahverfinu & dr.-inn sté út. Þær líða svo hratt þráseturnar hjá Tjallanum.
Samgöngur | 15.4.2009 | 15:09 (breytt kl. 15:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Enda þótt hinum hreystimannlega & hjartaprúða dr. finnist alltaf bezt að tylla sér í dobbel dekkerinn í höfuðstað Bretaveldis, er eigi að síður gaman að eiga þrásetur & langdvalir í hinum glæsta Mercedes Benz Citaro. Slíkir vagnar eru lággólfs- og liðvagnar (bendy buses), 3ja hásínku & með þremur dyrum. Aka hinir þýskættuðu vagnar einkum leiðum 12, 38, 73, 149, 436 & 521.
Dr.-inn gerði sér far með leiðum 38 & 436. Hin fyrrnefnda, leið 38, er á fjögurra mínútna fresti & ekur að samgöngumiðstöðinni hennar Viktoríu hvar maður getur farið í allar áttir með vögnum, rútum & lestum.
Opt & iðulega sér maður hina þrítugustu & áttundu leið nánast í halarófu, einkum í miðbænum í grennd við Piccadilly Circus. Slíkt er ekki vandamál í henni London; ef vagnar ná að hringa hvor annan er oss vagnverjum einfaldlega komið fyrir í öðrum vagninum - ef pláss leyfir - & hinn fer á endastöð.
Leið 38 hefir einkennistafina MA & sá dr.-inn vagna á bilinu 80-120 á vachtinni. Hins vegar er ljóst að um 40-50 vagnar hljóta að aka hverju sinni til að ná þessari kynngimögnuðu tíðni - 4 mínútur.
Aukinheldur eru áhöld uppi um það að hafa eingöngu tveggja hæða vagna í umferð í London - líkt & var hér á árum áður. Þá kunna dagar Citaro að vera taldir.
Er þetta ekki gullið tækifæri fyrir þá Fjarðarmenn að sanka að sér eins & tveimur Citaroliðvögnum úr flota Lundúnarborgar??? Er ekki kominn tími til að endurnýja liðvagnana tvo er aka á aukavöcthum á leið 1??? Það yrði nú gaman - að hoppa inn í vagnana - vini vora - frá alveg nýrri hlið :) :) :) !!!
Dr.-inn hepði nú nær haldið það.
Doksi kallinn var rólegur á myndavélinni í þetta skiptið en hleður myndum sínum inn síðar.
Samgöngur | 15.4.2009 | 10:26 (breytt 16.4.2009 kl. 10:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn saxneski & sótrauði dr. hefir lokið pílagrímsferð sinni til Tjallans. Doksa kallinn skortir opt & einatt orð til að lýsa hinu engilsaxneska vagnakerfi Lundúnaborgar - úff, maður lifande...
Leiðir 23, 38, 94 & 148 voru aðalleiðir dr.´s að þessu sinni hvar hann dvaldi vestarlega í Kensingtonhverfi.
Það gladdi hró doksa að sjá yfirleitt sneisafulla vagna aukinheldur sem leið 148 var eingöngu ekinn af Scania; OmniCity & East Lancs Olympusvögnum. Þá báru hinir glæstu MB Citaro liðvagnar ábyrgð á leið 38.
Samgöngur | 14.4.2009 | 09:12 (breytt kl. 09:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hinn taktfasti & trendí dr. tók sér far með Heuliezdvergi á leið 2 í morgun. Hinn fjórtandi var á vachtinni & lenti við laut dr.´s kl. 8:15. Einvörðungu tveir aðrir vagnverjar voru með í för & vachnar því sú spurning hvort aukaferðir - liðvagnarnir - hafi verið á vappi þennan morguninn??? Humm, humm.
Í Hamraborginni blasti kunnugleg sjón við. Á leið 1 voru hinn glæsti 23 vagn á leið í bæinn & 38 Agora á leið í Fjörð; hinn tólfti dvergur á leið 2 áleiðis í Smáralind & Sali, 29 Agora á leið 4 sem & 25 Citelis. Tólfti Teiti sniglaðist aukinheldur á rangsælis hringnum, leið 36.
Hvað um það. Dr.-inn gerir nú víðreisn & hyggst stunda vagnarannsóknir sínar í Lundúnum yfir hátíðarnar. Ef að líkum lætur verða leiðir 23, 94 & 148 -jafnvel 9 & 10 - ofarlega í huga doksa.
Farvel Frónbúar & mínir virðulegu vagnverjar. & munið að vagnarnir - vinir vorir - ganga ekki á föstudaginn langa (stutta?) & páskadag - því miður.
Samgöngur | 8.4.2009 | 08:57 (breytt kl. 10:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hinn fengsæli & fráleitt fjarverandi dr. fékk sér sæti í fámennum rútuskratta á leið 2 er skreið upp að lautinni um kl. 8:28. Nemar voru líklega rígbundnir við rekkjur sínar hvar páskafrí er hafið í flestum skólum landsins. Doksi kallinn sat meðal fjögurra vagnverja.
Stoðar lítt um þá að þrátta
þægilegir á veginum.
Útsýnið & til allra átta
á ægifögrum deginum.
Samgöngur | 6.4.2009 | 10:11 (breytt kl. 10:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á biðskýli skaust
& skaði af hlaust
verjar vagna ei þar
voru annars staðar
Samgöngur | 5.4.2009 | 13:57 (breytt kl. 14:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Undanfarnar vikur hefir dr.-inn tekið eptir því að skýlin nýju hafa orðið fyrir barðinu á vörgum. Griðland okkar vagnverja hefir því orðið fyrir talsverðu tjóni sem er bagalegt mjög.
Skýlin halda nú vart hvorki vatni né vindum & mega ekki við því að verða fyrir útrás varganna.
Hvað um það - doksi kallinn er á leið á leið þrátt fyrir þá ömurlegu staðreynd að nú sé sunnudagur & alltof margar leiðir á klukkutímatíðninni.
Samgöngur | 5.4.2009 | 11:24 (breytt kl. 11:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar